Fara í efni

Tilmæli til hundeigenda

Fréttir

Við vitum að fátt er eins frískandi og hressandi en að fara út að ganga eða hlaupa með hundinn sinn. Bæði eigandinn og hundurinn hafa gott af hollri hreyfingu. 
Eitt sem stundum gleymist í þessum gönguferðum er að hafa með sér poka þegar hundurinn gerir þarfir sínar. Hundurinn spyr ekki um stund eða stað þegar svo ber undir. Við beinum því þeim vinsamlegu tilmælum til hundaeigenda að þeir hafi með sér poka og þrífi upp eftir hundana því fátt er eins óaðlaðandi eins og að sjá að hundur hefur gert þarfir sínar á víðavangi, görðum eða gangstígum sérstaklega nú þegar snjór liggur yfir öllu. Tökum poka með í útivistina með hundinum  og þrífum eftir þá.