Fara í efni

Fjárheimtur Brekknafólks

Fundur
13. apríl 2008Góðan og blessaðan daginn.Langaði að segja ykkur frá skemmtilegum fjárheimtum sem Kristín Kristjánsdóttir og Úlfar Þórðarson á Syðri-Brekkum lentu í í dag sunnudaginn 13.apríl. Frést haf

13. apríl 2008
Góðan og blessaðan daginn.

Langaði að segja ykkur frá skemmtilegum fjárheimtum sem Kristín Kristjánsdóttir og Úlfar Þórðarson á Syðri-Brekkum lentu í í dag sunnudaginn 13.apríl. Frést hafði af 8 vetra tvílembdri kind nálægt Skoruvík á Langanesi í gær og þótti henni svipa til einnar kindar þeirra hjóna sem ekki skilaði sér sl. haust. 

Hjónin á Brekkum, ásamt sonum,  tengdadóttur og barnabörnum lögðu þá upp í leitarferð í morgun og voru vart komin fram undir Höfða þegar húsbóndinn, Úlfar, kom auga á kindina ásamt tveimur gimbrum.

Meira á Þórshöfn Fréttir