Fara í efni

Frábær árangur á blakmóti

Fréttir
Um helgina fóru Álkurnar okkar á blakmót á Siglufirði og alveg óhætt að segja að það hafi verið sigurför. Tvö Álku-lið voru að keppa og voru Álkur 1 í fyrsta sæti í sinni deild og Álkur 2 í þriðja sæti. Mótið var tveggja daga mót, spilað bæði á Siglufirði og Ólafsfirði, en í heildina voru nærri 50 lið að spila. Spilað var í fjórum kvennadeildum og tveimur karladeildum. Hvort lið keppti 5 leiki. Í vetur hafa verið markvissar æfingar og hefur Árni Sigurðsson frá Öxarfirði þjálfað liðið sem hefur gefið greinilega virkað sem vítamínsprauta í blakíþróttina. Virkilega gaman að þessu og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Um helgina fóru Álkurnar okkar á blakmót á Siglufirði og alveg óhætt að segja að það hafi verið sigurför. Tvö Álku-lið voru að keppa og voru Álkur 1 í fyrsta sæti í sinni deild og Álkur 2 í þriðja sæti í sömu deild. Mótið var tveggja daga mót, spilað bæði á Siglufirði og Ólafsfirði, en í heildina voru nærri 50 lið að spila. Spilað var í fjórum kvennadeildum og tveimur karladeildum. Hvort lið keppti 5 leiki. Í allan vetur hafa verið markvissar æfingar með þjálfara en Árni Sigurðsson frá Öxarfirði tók við um áramót, þar áður voru Hnikarr Jónsson og Friðbjörn Hlynsson að þjálfa. Þetta hefur gefið greinilega virkað sem vítamínsprauta í blakíþróttina. Virkilega gaman að þessu og óskum við þeim til hamingju með árangurinn. 

Álkur 1

Álkur 2