Einstakt á heimsvísu
29.07.2014
Fréttir
Það er óhætt að mæla með Forystufjársetrinu á Svalbarði en safnið er einstakt á heimsvísu. Fyrir utan fróðleik um forystuféð er ýmis varningur til sölu, myndlistarsýning og kaffihús
Það er óhætt að mæla með Forystufjársetrinu á Svalbarði en setrið er einstakt á heimsvísu. Fyrir utan fróðleik um forystuféð er ýmis varningur til sölu, myndlistarsýning og klassa kaffihús en stór og mikill pallur var smíðaður við húsið og er notalegt að sitja þar úti með veitingar í fallegu umhverfi.
Mánuður er síðan safnið opnaði og hafa um 440 manns komið þar við. Setrið heldur úti heimasíðu, forystusetur.is ásamt síðu á facebook. /HS
Daníel Hansen