Fara í efni

Fréttatilkynning frá Ísfélagi Vestmannaeyja hf

Fréttir
Ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á fjölveiðiskipinu Þorsteini ÞH og uppsjávarfrystiskipinu Guðmundi VE úr landi.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á fjölveiðiskipinu Þorsteini ÞH og uppsjávarfrystiskipinu Guðmundi VE úr landi.

Fyrirhugað er að félag í eigu Royal Greenland A/S, Ísfélags Vestmannaeyja hf. og annarra aðila eignist og geri út skipin. Royal Greenland er elsta og þekktasta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands. Skipin verða gerð út á Grænlandsmið eftir að þau hafa verið afhent nýjum eiganda síðar á árinu.

Rétt er að vekja athygli á óvissu varðandi framtíðarhorfur í íslenskum sjávarútvegi. Sú ofurskattlagning, þ.e. svokallað veiðigjald sem útgerðir í landinu þurfa að greiða, mun leiða til þess að atvinnugreinin verður ekki lengur samkeppnishæf á alþjóðlegum mörkuðum.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. er elsta starfandi hlutafélag á landinu, stofnað 1. desember árið 1901. Félagið er burðarás í atvinnulífi í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri, í síma 488 1100.