Fara í efni

Fréttatilkynning! frá K og M lista.

Fundur
 2.mars 2009Vegna ummæla sem fyrrverandi sveitarstjóri Langanesbyggðar, Björn Ingimarsson, lét hafa eftir sér í fréttum í gær vill meirihluti hreppsnefndar Langanesbyggðar koma eftirfarandi á fra

 2.mars 2009

Vegna ummæla sem fyrrverandi sveitarstjóri Langanesbyggðar, Björn Ingimarsson, lét hafa eftir sér í fréttum í gær vill meirihluti hreppsnefndar Langanesbyggðar koma eftirfarandi á framfæri.

Það er ekki rétt sem kemur fram í viðtali sem tekið var við Björn Ingimarsson á mbl.is í gær að við hefðum ekki verið sátt við að hann færi í prófkjör. Málið á sér lengri aðdraganda sem snýr að starfi Björns sem sveitastjóra. Okkar listar eru þverpólitískir og höfum við borið gæfu til þess að blanda ekki landspólitík í okkar störf en setjum okkur ekki á móti framboði, hvar í flokki sem menn standa. Ósk okkar er að gera þessi samstarfslit í sátt. Við berum enga óvild til Björns og óskum honum velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Virðingarfyllst
K og M listar í hreppsnefnd
Langanesbyggðar.