Fara í efni

Fréttatilkynning frá O - lista

Fundur
FréttatilkynningÍ tilefni framkominna fréttatilkynninga vegna starfsloka Björns Ingimarssonar sveitarstjóra vill minnihluti sveitarstjórnar (o listi) koma eftirfarandi á framfæri:Við teljum starfslok

Fréttatilkynning

Í tilefni framkominna fréttatilkynninga vegna starfsloka Björns Ingimarssonar sveitarstjóra vill minnihluti sveitarstjórnar (o listi) koma eftirfarandi á framfæri:

Við teljum starfslok Björns Ingimarssonar alls ótímabær og í raun óskiljanleg í ljósi farsælla starfa hans í þágu sveitarfélagsins undanfarin sjö ár.  

Við þökkum Birni gott samstarf og óskum honum góðs gengis í hverju því sem hann kýs að taka sér fyrir hendur.

Virðingarfyllst
Fulltrúar O lista í hreppsnefnd Langanesbyggðar