Fara í efni

Friðarhaupið 2013

Fréttir

Hlauparar í Friðarhaupi 2013 koma til Þórshafnar í dag. Ungmennafélag Langnesinga hvetur þá sem hafa áhuga á að hlaupa með þeim lokasprettinn að mæta upp við vatnsþró um kl 15. Hlaupið verður með kyndilinn niður í Skrúðgarðinn og er stefnt að því að vera þar um kl 15:30.  Þar verður gróðursett friðartré og smá athöfn verður fyrir krakkana t.d. fá þau að halda á kyndlinum.
Ungmennafélag Langnesinga hvetur íbúa til að taka virkan þátt í þessum viðburði.