Fundur um skólamál
02.05.2012
Fundur
Fræðslunefnd Langanesbyggðar minnir á opin fund um málefni Grunnskólans á Þórshöfn, sem haldinn verður í dag, miðvikudaginn 2. maí kl. 17:00 í Þórsveri. Á fundinum verður kynnt úttekt sem menntamálará
Fræðslunefnd Langanesbyggðar minnir á opin fund um málefni Grunnskólans á Þórshöfn, sem haldinn verður í dag, miðvikudaginn 2. maí kl. 17:00 í Þórsveri.
Á fundinum verður kynnt úttekt sem menntamálaráðuneytið lét gera á grunnskólanum sl. haust og umbótaáætlun sem unnin var í kjölfar úttektarinnar. Jafnframt verður kannaður grundvöllur fyrir stofnun hollvinasamtaka grunnskólans.
Allir velunnarar grunnskólans og áhugafólk um skólamál velkomin en foreldrar og kennarar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Fræðslunefnd Langanesbyggðar