Fyrirlestrar um mikilvægi svefns og svefnvandamál
Mánudagurinn 20. mars heldur Dr. Erla Björnsdóttir fyrirlestra um mikilvægi svefns og svefnvandamál. Fyrirlestrarnir verða í Þórsveri sem hér segir:
kl. 16.15 Fyrirlestur fyrir starfsfólk LNB og aðra sem vilja, opinn fyrirlestur, gert ráð fyrir klukkutíma.
Betri svefn - grunnstoð heilsu
Í þessum fyrirlestri mun Dr. Erla Björnsdóttir fara yfir mikilvægi svefns fyrir andlega og líkamlega heilsu, fjalla um algeng svefnvandamál og gefa ráð til að öðlast góðan nætursvefn.
kl.17.30 - fyrirlestur fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna - gert ráð fyrir klukkutíma.
Betri svefn-grunnstoð heilsu
Í þessum fyrirlestri mun Dr. Erla Björnsdóttir fara yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu og vellíðan barna og unglinga. Erla mun fjalla umþætti sem hafa áhrif á svefn barna og gefa foreldrum góð ráð sem stuðla að góðum svefni barna og unglinga.
Fyrirlestrarnir eru þátttakendum að kostnaðarlausu.