Gallerí Beita opnar á Þórshöfn
05.07.2013
Fréttir
Föstudaginn 5. júlí opnar lítið handverksgallerí í Villahúsi á Þórshöfn.
Föstudaginn 5. júlí opnar lítið handsverksgallerí í Villahúsi á Þórshöfn - beitiskúrinn sem er á móti Bárunni. Þar verður handverk og hönnun frá heimafólki. Heitt verður á könnunni frá kl 15-18 opnunardaginn.
Í sumar verður opið á virkum dögum frá kl 15-18 og um helgar frá 13-16. Þeir sem vilja selja handverk í Gallerí Beitu endilega hafið samband við Hrafngerði eða Grétu Bergrúnu.