Gengið í Steintún og Digranesvita
14.09.2013
Fréttir
Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir haustgönguferð laugardaginn 14. september.
Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir haustgönguferð laugardaginn 14. september. Steintún í Bakkafirði er með fallegri bæjarstæðum á landinu. Þaðan er stutt að Digranesvita sem stendur á ævintýralegum stað. Hægt er að ganga eftir slóða alla leið, svo þetta er þægileg ganga fyrir alla fjölskylduna.
Lagt verður upp frá skólanum á Bakkafirði kl. 13:00.