Getum við aðstoðað?
04.03.2014
Fréttir
Starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verða með viðveru í Menntasetrinu á
Þórshöfn þriðjudaginn 4. mars nk. milli kl. 11 og 15.
Kjörið tækifæri fyrir þá sem búa yfir viðskiptahugmynd eða eru komnir af stað með viðskiptahugmynd en vilja komast lengra að
nýta sér þá sérfræðiráðgjöf sem Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Nýsköpunarmiðstöð
Íslands bjóða upp á.
Verið velkomin í spjall og ráðgjöf.
Hlökkum til að sjá ykkur
Ásbjörn, Jóna og Reinhard.