Fara í efni

Gistiheimilið Lyngholt

Lyngholt er staðsett ofarlega í þorpinu, í göngufæri við alla þjónustu. Við bjóðum upp á heimilislega gistingu. Það er sjónvarp á öllum herbergjum og gestir hafa eldhúsaðstöðu. Gestir hafa svalir og v

Lyngholt er staðsett ofarlega í þorpinu, í göngufæri við alla þjónustu. Við bjóðum upp á heimilislega gistingu. Það er sjónvarp á öllum herbergjum og gestir hafa eldhúsaðstöðu. Gestir hafa svalir og verönd og hafa þar afnot af grilli og garðhúsgögnum. Á fallegum sumarkvöldum er tilvalið að eiga notalega kvöldstund á góðum stað.
Dagsferðir frá Þórshöfn er góður kostur, ekki veitir af heilum degi í að skoða allt það sem nesin okkar tvö Langanes og Rauðanes hafa upp á að bjóða. Fuglalíf er fjölskrúðugt og náttúran óspillt, eyðibýli eru víða og alls staðar má sjá merki um gamla tímann.

Kíktu við á leið þinni um norðausturland og skoðaðu fáfarnar slóðir, hlustaðu á þögnina og eigðu almennilegt frí þar sem rólegheitin ráða ríkjum. Hjá okkur þarftu ekki að eyða fríinu þínu í að standa í biðröðum eða sitja fastur í traffík. VERIÐ VELKOMIN
http://www.lyngholt.is/