Gjaldkeri og launafulltrúi Langanesbyggðar
31.07.2023
Fréttir
Langanesbyggð auglýsir eftir gjaldkera og launafulltrúa í 100% starf á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2
- Starfslýsing:
Greiðsla reikninga
Launvinnsla
Skráning reikninga
Skjölun og skjalavistun
Símsvörun og móttaka
Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kunna að vera falin - Hæfniskröfur:
Menntun og/eða reynsla sem hæfir starfslýsingu.
Góð tölvukunnátta
Viðkomandi þarf að vera talnaglöggur
Heiðarleiki, stundvísi og áreiðanleiki
Góðir samstarfseiginleikar
Í boði er góð vinnuaðstaða á samheldnum vinnustað. Viðkomandi starfsmaður heyrir undir skrifstofustjóra. Launakjör samkvæmt kjarasamningi sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið veita Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri bjarnheidur.jonsdottir@langanesbyggd.is og Björn S. Lárusson sveitarstjóri bjorn@langanesbyggd.is og í síma 468 1220
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2023.
Umsóknir skal senda til sveitarstjóra - bjorn@langanesbyggd.is merkt: Umsókn um starf.