Góð gjöf frá velunnurum Nausts
21.06.2016
Fréttir
Á dögunum bárust Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn góðar gjafir frá velunnurum sínum sem hafa um nokkurt skeið selt handunnin kort til styrktar heimilinu.
Á dögunum bárust Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn góðar gjafir frá velunnurum sínum sem hafa um nokkurt skeið selt handunnin kort til styrktar heimilinu. Borghildur Björg Þóroddsdóttir afhenti fyrir þeirra hönd vatnsvél í matsalinn og 12 sólstóla til þess að hafa á pallinum í sumar.
Er þessi gjöf keypt fyrir ágóðan af kortasölunni en verið er að selja falleg handunnin tækifæriskort og rennur allur ágóðinn af sölunni til Dvalarheimilisins Naust. Þess má geta að þessi handgerðu kort má kaupa hjá Borghildi Björgu eða Sesselíu á Syðri-Brekkum.
Erum við mjög þakklát þessum velunnurum okkar fyrir þetta kærkomna framlag til heimilisins og munum við fara inn í sumarið með bros á vör sitjandi úti í sólinni á pallinum.