Gosmistur
21.09.2014
Fréttir
Gosmistur liggur yfir Þórshöfn og nágrenni í dag og má búast við því einnig á morgun
Tekið af vedur.is:
"Í dag (sunnudag) er útlit fyrir ákveðna sunnanátt og ætti að nást að skipta vel um loft yfir landinu. Þó má búast
við því að það gas sem kemur upp í eldgosinu í dag, berist jafnharðan til norðurs, yfir svæði sem afmarkast af Bárðardal
í vestri að Öxarfirði í austri. Ekki er hægt að útiloka mengun á stærra svæði, einkum framan af degi meðan vindur er að
ná sér upp.
Á morgun (mánudag) er útlit fyrir suðvestanátt og þá berst mengunin til norðausturs, frá Þistilfirði suður á
Hérað."
Myndir teknar í dag, sunnudagsmorgun
Myndir: Rúnar Konráðsson