Grunnskóli Bakkafjarðar auglýsir eftir kennurum til starfa
20.07.2015
Fréttir
Grunnskólinn á Bakkafirði auglýsir eftir kennurum í almenna kennslu á öllum stigum grunnskólans og leikskólakennara til starfa fyrir næsta skólaár.
Grunnskólinn á Bakkafirði auglýsir eftir kennurum í almenna kennslu á öllum stigum grunnskólans og leikskólakennara til starfa fyrir næsta skólaár.
Grunnskólinn á Bakkafirði er heildstæður samrekinn leik- og grunnskóli með alls um 18 nemendur þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og skapandi starf.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2015.
Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst. Laun fara eftir kjarasamningi. Umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Nánari upplýsingar veitir María Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 8577400 og á netfangið maria@langanesbyggd.is
Umsóknir, einkunnir og starfsferilskrá skal senda til skólastjóra fyrir 20. júlí 2015.