Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum
26.03.2024
Fréttir
Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum
Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
* Leyfisbréf kennara
* Færni í mannlegum samskiptum
* Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
* Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
* Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
* Góð íslenskukunnátta
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín.
Sjá hér tengil á heimasíðu Grunnskólans á Þórshöfn: https://www.grunnskolinn.com/is