Fara í efni

Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum skólaveturinn 2025-2026

Fréttir

Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum skólaveturinn 2025-2026.
Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.

Grunnskólinn á Þórshöfn:
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín. Unnið er eftir agastefnunni Jákvæður agi, skólinn tekur þátt í verkefunum Heilsueflandi grunnskóli og Grænfáninn. Unnið er í anda lærdómssamfélags og er innleiðing á leiðsagnarnámi nú á þriðja ári. Í Grunnskólanum á Þórshöfn eru 57 nemendur.

Lausar stöður til umsóknar:
Afleysing í eitt ár í íþróttum á yngsta stigi og faggreinakennsla á öllum stigum. (100%)
Kennsla í list- og verkgreinum á öllum stigum (100%)
Stoðkennsla (50%)
Sundkennsla (hlutastarf)

Menntunar- og hæfniskröfur:
Leyfi til að nota starfsheitið kennari
Færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Áhugi og hæfni til að starfa í teymum og að fjölbreyttum verkefnum

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025 og er ráðið í stöðurnar frá 1.ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com
Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is