Grunnskólinn á Þórshöfn og leikskólinn Barnaból auglýsa eftir deildarstjóra stoðþjónustu
Grunnskólinn á Þórshöfn og leikskólinn Barnaból auglýsa eftir deildarstjóra stoðþjónustu.
Um er að ræða 100% starf sem skiptist á milli stofnana í hlutfalli við þörf hverju sinni.
Mikið og gott samstarf er á milli skólanna og í unnið er í anda lærdómssamfélags, mikil áhersla er á teymisvinnu og góð samskipti. Báðir skólar hafa innleitt agastefnuna Jákvæður agi og starfa eftir þeirri stefnu.
Í Grunnskólanum á Þórshöfn eru 55 nemendur og á Barnabóli eru 25 börn
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með stoðkennslu og kennslu íslensku sem annars máls
- Sér til þess að veitt sé stoðþjónusta í hverjum árgangi eftir þörfum
- Er tengiliður skólans við sálfræðinga, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga og stofnanir sem tengjast skólunum
- Er tengiliður um samþætta þjónustu í þágu farsældar barns
- Veitir stuðningsfulltrúum faglegan stuðning
- Situr teymis- og skilafundi eftir því sem við á
- Aðstoðar kennara við gerð einstaklingsnámskráa
- Aðstoðar kennara við að skipuleggja nám barna með sérþarfir í námshópi
- Hefur eftirlit með námsgögnum sem eru sérstaklega ætluð í stoðkennslu og sér um skipulagningu á stoðkennsluaðstöðu í samráði við aðra stjórnendur.
- Útbýr aðlagaðar stundaskrár nemenda þegar þörf er á
Menntunar og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu
- Framhaldsmenntun og reynsla sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sérkennslu og/eða stoðþjónustu
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
- Frumkvæði og metnaður
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024
Umsókn um starf skal senda á halldoraf@langanesbyggd.is eða hilma@thorshafnarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2024 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.