Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir kennurum til starfa við skólann næsta skólaár
Við óskum eftir kennurum sem hafa brennandi áhuga og eru skapandi í starfi. Við leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem
á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fær notið sín. Okkur vantar umsjónarkennara, kennara
í list og verkgreinar, íþróttakennara og tungumálakennara.
Við óskum eftir kennurum sem hafa brennandi áhuga og eru skapandi í starfi. Við leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á
það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fær notið sín. Okkur vantar umsjónarkennara, kennara
í list og verkgreinar, íþróttakennara og tungumálakennara.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum
þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega
þátttöku nemenda í skólastarfinu. Á vef skólans; grunnskolinn.is/thors má kynna sér allt það helsta sem snertir daglegt
skólastarf liðinna mánaða.
Á Þórshöfn er blómstrandi mannlíf, mikil náttúrufegurð, öflugt íþrótta- og félagsstarf fyrir alla
þá sem vilja verða hluti af fjölbreyttri mannlífsflóru norðlensks sjávarþorps.
Umsóknarfrestur er til 1. maí og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið ingveldur@thorshafnarskoli.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri
Ingveldur Eiríksdóttir
4681164 - 8526264
Nálgast má auglýsinguna í pdf formi hér.