Fara í efni

Grunnskólinn á Þóshöfn óskar eftir starsfólki til starfa við afleysingar

Fréttir
Hlaupið í skarðið á góðum degi
Hlaupið í skarðið á góðum degi
Lykilorð okkar í Grunnskólanum á Þórshöfn eru vinsemd, virðing, vellíðan og virkni en þessi gildi leggjum við rækt við og leitumst við að uppfylla. Starfsfólk skólans hefur sinnt fjölbreyttu þróunarstarfi á liðnum árum og leggur áherslu á virkni og hlutdeild allra í skólabragnum. Áherslan í skólastarfinu er á fjölbreytta kennsluhætti, eflingu læsis, félagsfærni (ART) og samvinnu allra í skólanum, jafnt nemenda sem fullorðinna.

Áhugi á lifandi starfi með börnum og fullorðnum er skilyrði og góð færni í samskiptum er öllum þeim nauðsynleg sem starfa við grunnskólann.

Við leitum að:

Starfsmanni sem vinnur með nemendum og kennurum á eldra stigi skólans auk þess sem hann sinnir gæslu í frímínútum og hádegi og öðrum þeim verkefnum sem honum eru falin og heyra undir verksvið hans. Vinnutími er frá 7:30 – 15:30. Nánari starfslýsingu má nálgast hjá skólastjóra.  Um er að ræða starf til 1. apríl 2015.

Íþróttakennara í afleysingar frá 15. janúar til 15. febrúar og eftir páska fram til 8. júní 2015

Við óskum  eftir umsjónarkennara í 1. og 2. árgangi sem er hluti af kennsluteymi 1. – 4. árgangs.  Viðkomandi skal hafa kennsluréttindi í grunnskóla. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 8. júní 2015.

Einnig vantar við skólann sérkennara í 50% starf.

Umsóknarfrestur er til 12. janúar 2015

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 852 6264 eða á netfangið ingveldur@thorshafnarskoli.is

Ingveldur Eiríksdóttir
Skólastjóri