Fara í efni

HÆFILEIKARÍKUR REKSTRARSTJÓRI ÓSKAST

Fréttir
Rekstrarstjóri óskast til starfa á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni.

Rekstrarstjóri óskast til starfa á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni. 

Hlutverk rekstrarstjóra eru meðal annars:
-        Að bera ábyrgð á rekstri heimilisins ásamt forstöðumanni hjúkrunar
-        Að annast starfsmannamál í samvinnu við forstöðumann
-        Að hafa umsjón með skráningu og gagnaskilum
-        Að gera fjárhags- og rekstraráætlanir
-        Að sjá um kostnaðar- og innkaupaeftirlit 

Menntunar- og hæfniskröfur:

-        Reynsla af stofnanarekstri og starfsmannahaldi
-        Menntun á heilbrigðissviði æskileg
-        Menntun á sviði rekstrar æskileg
-        Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
-        Sjálfstæð vinnubrögð, talnaskilningur og rökfesta 

Nánari upplýsingar veitir:
Elías Pétursson, sveitarstjóri
S: 468 1220 og 892 0989
elias@langanesbyggd.is

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.