Hafdís Huld á ferð
29.07.2014
Fréttir
Tónlistarkonan Hafdís Huld er á ferðalagi um landið til þess að fagna útgáfu sinnar þriðju sólóplötu Home. Á dagskránni eru lög af sólóplötum Hafdísr Huldar sem og vel valin íslensk lög.
Hafdís Huld og Alisdair verða með tónleika í Langanesbyggð og Norðurþingi. Tónleikarnir í Langanesbyggð verða þann 29. júlí á Bárunni á Þórshöfn og hefjast kl 21.00
Tónlistarkonan Hafdís Huld er á ferðalagi um landið til þess að fagna útgáfu sinnar þriðju sólóplötu Home. Platan kom út í Bandaríkjunum og Evrópu nú í vor og hefur fengið frábæra dóma. Með Hafdísi Huld á ferðalaginu er gítarleikarinn Alisdair Wright en saman hafa þau komið fram á mörgum af stærstu tónlistarhátíðum heims.
Á dagskránni eru lög af sólóplötum Hafdísr Huldar sem og vel valin íslensk lög.
Hafdís Huld og Alisdair verða með tónleika í Langanesbyggð og Norðurþingi.
29. júlí Báran á Þórshöfn kl 21.00
30. júlí Skjálftasetrið Kópaskeri kl 20:00
31. júlí Gamli Baukur Húsavík kl 22.00
Miðaverð er 2000 kr