Hafnarvörður óskast
Langanesbyggð óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa á Þórshöfn. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 3. ágúst. Æskilegt er að nýr hafnarvörður geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
Hafnarvörður annast almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hann vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun. Hann vinnur að eftirliti með hafnarsvæðum, umferð um þau og umgengni og vinnur við daglegt viðhald hafnarmannvirkja og búnaðar hafnarinnar. Hann vinnur að öryggismálum hafnarinnar, mengunarvörnum og hafnarvernd. Hafnarvörður vinnur í nánu sambandi við áhaldahús Langanesbyggðar. Nánari lýsing á starfi er í starfslýsingu .
Hæfniskröfur:
30 tonna siglingaréttindi pungapróf er kostur
Ökuskírteini
Grunnþekking á tölvuvinnslu
Réttindi á hafnarvog eru kostur
Enskukunnátta er kostur
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Upplýsingar gefur Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri, í netfanginu sveitarstjori@langanesbyggd.is, eða í síma 468-1220.