Fara í efni

Hjólabátaleiga og veiði

Íþróttir
Margt er hægt að gera sér til gamans ef menn heimsækja Langanes. Á Ytra-Lóni á Langanesi er hægt að fá veiðileyfi í Lónsá og Sauðanesósi. Leigðar eru tvær stengur á dag.Á sama stað er einnig hægtMargt er hægt að gera sér til gamans ef menn heimsækja Langanes. Á Ytra-Lóni á Langanesi er hægt að fá veiðileyfi í Lónsá og Sauðanesósi. Leigðar eru tvær stengur á dag.
Á sama stað er einnig hægt að leigja hjólabáta til að sigla um á lóninu. Leigðir eru út einn tveggja manna og einn fjögurra manna fjölskyldubátur, fínn fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Það er ekki erfitt að hjóla á hjólabáti nema það sé mjög hvasst Frá 6 - 7ára aldri fara börnin að ná í fótstigin og geta prófað líka. Björgunarvesti fylgja.
Gestir á Kátum dögum sem og aðra daga ættu að hafa þessa skemmtun á bak við eyrað. Um veiðina og hjólabátana má fá nánari upplýsingar og bóka með því að hafa samband í síma 468-1242 / 846-6448 eða í móttökuna á farfuglaheimilinu sem rekið er á Ytra-Lóni.