Fara í efni

Hjónin á Felli færðu Björgunarsveitinni Hafliða björgunarlaun

Fréttir
Fyrir viku síðan var umfangsmikil björgunaraðgerð í Gunnólfsvíkurfjalli en þá var Reimar bóndi á Felli í sjálfheldu við fossinn Míganda og var bjargað af sérhæfðum klettabjörgunarmönnum, ásamt fjölmennu björgunarliði sem kom að aðstæðum. Þau hjónin, Reimar og Dagrún kona hans notuðu tækifærið um helgina til að afhenda Björgunarsveitinni Hafliða björgunarlaun, og komu einnig fram einlægum þökkum til allra þeirra sem komu að þessari giftusamlegu björgun. Reimar var í fjallinu að eltast við kindina Snöru sem hann sá með kíki heiman frá sér enda býr hann á Felli í Finnafirði, nánast við rætur fjallsins. Það fór þó svo að hann elti ána upp á klettasyllu en komst síðan ekki niður aftur. Um 80 manns komu að þessari björgunaraðgerð en aðstæður voru afar erfiðar og fór svo að marga klukkutíma tók að komast til hans í myrkri og rigningu. Það var ekki fyrr en undir morgun sem hann var kominn aftur í faðm fjölskyldurnar sem að vonum var ekki rótt á meðan á þessu stóð. Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð til, ásamt björgunarsveitum úr nágrenninu. Þá var áhöfnin á Geir ÞH kölluð til en þeir lýstu með sterkum ljóskastara upp í bjargið, ásamt bátinum Finna frá Bakkafirði.

Fyrir viku síðan var umfangsmikil björgunaraðgerð í Gunnólfsvíkurfjalli en þá var Reimar bóndi á Felli í sjálfheldu við fossinn Míganda. Honum var bjargað af sérhæfðum klettabjörgunarmönnum, ásamt fjölmennu björgunarliði sem kom að aðstæðum. Þau hjónin, Reimar og Dagrún kona hans notuðu tækifærið um helgina til að afhenda Björgunarsveitinni Hafliða björgunarlaun, og komu einnig fram einlægum þökkum til allra sem komu að þessari giftusamlegu björgun. Reimar var í fjallinu að eltast við kindina Snöru sem hann sá með kíki heiman frá sér enda býr hann á Felli í Finnafirði, nánast við rætur fjallsins. Það fór þó svo að hann elti ána upp á klettasyllu en komst síðan ekki niður aftur, en fjallið er þverhnípt og var hann í um 200 m hæð yfir sjó. Um 80 manns komu að þessari björgunaraðgerð en aðstæður voru afar erfiðar og fór svo að marga klukkutíma tók að komast til hans í myrkri og rigningu. Það var ekki fyrr en  undir morgun sem hann var kominn aftur í faðm fjölskyldurnar sem að vonum var ekki rótt á meðan á þessu stóð en hann hafði þá verið nærri 15 tíma í fjallinu. Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð til, ásamt björgunarsveitum úr nágrenninu. Þá var áhöfnin á Geir ÞH kölluð til en þeir lýstu með sterkum ljóskastara upp í bjargið, ásamt bátinum Finna frá Bakkafirði. Allt er gott sem endar vel og frábært að sjá hversu gott starf björgunarsveitirnar okkar eru að vinna./GBJ

Ásberg veitir gjöfinni viðtöku frá Dagrúnu og Reimari á Felli.

 

Eins og sjá má voru aðstæður afar erfiðar í myrkrinu. Myndir Kristinn Lárusson

Karl Ásberg Steinsson formaður Björgunarsveitarinnar Hafliða

Hundunum tveimur sem voru með húsbónda sínum var einnig bjargað en hann sagði að þeir hefðu hjálpað til við að halda á honum hita.

 

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/11/07/elti_othaegar_kindur_upp_a_klettasyllu/

http://www.visir.is/bjorgunin-gekk-vel-midad-vid-adstaedur/article/2016161109147