Hjúkrunar- og dvalarheimilið Naust óskar eftir starfsmanni.
06.07.2023
Fréttir
Við á hjúkrunarheimilinu Nausti óskum eftir að ráða til okkar starfsmann í aðhlynningu í 56% stöðu.
Naust er hjúkrunar- og dvalarheimili með rými fyrir 14 íbúa.
Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri
- Jákvæðni og vinnusemi
- Sjálfstæði og stundvísi
- Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Vinnutími er frá kl 8:30-12:30 alla virka daga.
Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is