Hunda- og kattahreinsun í Langanesbyggð
16.11.2015
Fréttir
Boðið verður upp á hunda- og kattahreinsun á Þórshöfn og á Bakkafirði mánudaginn 16. nóvember n.k.
Boðið verður upp á hunda- og kattahreinsun á Þórshöfn og á Bakkafirði mánudaginn 16. nóvember n.k.
Staðsetning: Þórshöfn: Í áhaldahúsinu milli kl 16:30-18:00.
Bakkafirði: Í áhaldahúsinu milli kl 18:30-19:00
Þeir sem eru með óskráða hunda eða ketti geta skráð á staðnum og látið taka mynd af hundinum/kettinum. Hunda og kattahreinsun er innifalin í skráningargjaldi hunda og katta í Langanesbyggð.
Hægt er að láta örmerkja dýrin á staðnum en slíkt er gert á kostnað eigenda.
Allir hunda og kattaeigendur eru hvattir til að láta hreinsa gæludýrin sín.