Fara í efni

Íbúafundur á Bakkafirði á fimmtudag

Fréttir
Boðað er til íbúafundar á Bakkafirði fimmtudaginn 22. júní nk. kl. 16 í húsnæði Grunnskólans á Bakkafirði, Skólavegi 5.

Boðað er til íbúafundar á Bakkafirði fimmtudaginn 22. júní nk. kl. 16 í húsnæði Grunnskólans á Bakkafirði, Skólavegi 5.

Umræðuefni verða staða atvinnumála og möguleikar. Farið verður yfir stöðuna og aðgerðaráætlun Langanesbyggðar í samvinnu við Alþingi, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Byggðastofnun.

Þingmenn kjördæmisins mæta, fulltrúar frá Byggðastofnun, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga og sveitarstjórn ásamt öllum íbúum Bakkafjarðar og nágrennis.

-sveitarstjóri