Íbúafundur á Bakkafirði-Við mótum skólastefnu saman!
Við mótum skólastefnu saman!
Íbúafundur á Bakkafirði
Hvernig getum við eflt skólana í Langanesbyggð?
Hvernig sjáum við skólana okkar eftir tíu ár?
Hvað viljið þið setja á oddinn í skólamálum?
Hvað er brýnast að gera?
Hvaða leiðir viljið þið fara?
Á þessu hausti hefur verið unnið að mótun skólastefnu fyrir Langanesbyggð. Lögð er áhersla á að allir íbúar Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps eigi þess kost að taka þátt í þessu starfi ásamt fræðslunefnd, stjórnendum og starfsfólki skólanna, nemendum, foreldrum, skólaráðum og foreldraráðum beggja sveitarfélaganna.
Íbúafundur um mótum skólastefnu verður haldinn í grunnskólanum á Bakkafirði mánudaginn 18. nóvember n.k. og hefst kl 20:00.
Fundurinn verður með sama sniði og íbúafundurinn sem haldinn var á Þórshöfn 12. október sl. og er ætlaður þeim sem ekki komust á þann fund.
Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands sem ráðinn hefur verið til að stýra þessu stefnumótunarstarfi mun stjórna fundinum.
Öllum er velkomið að hafa samband við Ingvar um þetta verkefni í
síma 896 3829 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: skolastofan@skolastofan.is.
Íbúafundurinn er fyrir alla íbúa í Langanesbyggð og er það von sveitarfélagsins að sem allra flestir sjái sér fært að leggja sitt af mörkum til þessa mikilvæga verkefnis.