Íbúafundur um atvinnumál
13.02.2014
Fréttir
Íbúafundur verður haldinn um atvinnumál og nýsköpun og er þetta framhald af Íbúaráðstefnunni sem haldin var í Langanesbyggð í maí 2013. Fundurinn verður haldinn í matsal Íþróttahússins fimmtudaginn 13. febrúar 2014 og hefst kl 17:00.
Íbúafundur verður haldinn um atvinnumál og nýsköpun og er þetta framhald af Íbúaráðstefnunni sem haldin var í Langanesbyggð í maí 2013. Á fundinum verða teknar saman niðurstöður íbúaráðstefnunnar og næstu skref rædd.
Fundurinn verður haldinn í matsal Íþróttahússins fimmtudaginn 13. febrúar 2014 og hefst
kl 17:00.
Atvinnumál og nýsköpun eru málefni samfélagsins og ljóst að tækifærin eru víða. Það þarf hins vegar vilja og samstillt átak allra til að virkja þann kraft sem býr í hverju samfélagi.
Allir íbúar í Langanesbyggð eru hvattir til að mæta
Sveitarstjórn Langanesbyggðar og Atvinnuþróunarfélag
Þingeyinga.