Fara í efni

Íbúafundur um atvinnumál - í dag

Fréttir
Minnum á íbúafundinn um atvinnumál og nýsköpun sem haldinn verður í Matsal íþróttahússins í dag kl 17:00. Íbúar í Langanesbyggð eru hvattir til að mæta .

Íbúafundur verður haldinn um atvinnumál og nýsköpun og er þetta framhald af Íbúaráðstefnunni sem haldin var í Langanesbyggð í maí 2013. Á fundinum verða teknar saman niðurstöður íbúaráðstefnunnar og næstu skref rædd. 

Fundurinn verður haldinn í matsal Íþróttahússins fimmtudaginn 13. febrúar 2014 og hefst kl 17:00. 

Atvinnumál og nýsköpun eru málefni samfélagsins og ljóst að tækifærin eru víða. Það þarf hins vegar vilja og samstillt átak allra til að virkja þann kraft sem býr í hverju samfélagi.

Allir íbúar í Langanesbyggð eru hvattir til að mæta Sveitarstjórn Langanesbyggðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.