Fara í efni

Írsk stemning á Þórshöfn

Fréttir

Hátt upp til hlíða flokkurinn leggur land undir fót og ætlar að halda uppi blússandi Írskri stemningu á Þórshöfn í Langanesbyggð Laugardagskvöldið 09. nóvember kl 21.00 í Þórsveri
Miðasala á tónleikadag í Enn 1 skálanum og við innganginn Aðgangseyrir 3900.-
Söngflokkurinn samanstendur af rauðbirknum stuðboltum af héraði og hafa þeir troðfyllt Tehúsið þegar þeir hafa komið þar fram. Hátt upp til hlíða skipa þeir Róbert Elvar Sigurðsson, Þorsteinn Steinþórsson, Árni Pálsson, Hafþór Máni Valsson, Friðrik Jónsson, að ógleymdum Charles Ross. Sérstakir gestir Halldór Warén & Arnar Freyr Warén.

Irish Music forever