Fara í efni

Jóladagskrá

Fundur
Langanesbyggð      -fréttabréfNr. 17,  3. árg. 06. tbl. 22. desember  2008               &

Langanesbyggð      -fréttabréf

Nr. 17,  3. árg. 06. tbl. 22. desember  2008                              Ábm. Björn Ingimarsson

Jólapósturinn!

Tekið verður á móti jólapósti til útburðar innan Þórshafnar í Hafliðabúð eins og undanfarin ár.  Móttaka verður á Þorláksmessu kl. 16:00 18:00.

Umboðsmaður jólasveina á Bakkafirði verður til viðtals í skólanum í tengslum við skötuveisluna ef foreldrar vilja koma einhverju til dreifingar á aðfangadagsmorgun (pakkar og jólapóstur).

Við jólatréð á Þorláksmessu!

Safnast verður saman og dansað í kringum jólatréð á Þórshöfn kl. 19:30 á Þorláksmessukvöldi og má reikna með að jólasveinarnir láti sjá sig á staðnum fljótlega upp úr því.  Björgunarsveitin Hafliði, Samkaup og verkalýðsfélag Þórshafnar bjóða upp á kakó og kökur í búðinni.

Jólaböllin!

Jólaball foreldrafélags Grunnskólans á Þórshöfn verður í Þórsveri sunnudaginn 28. desember og hefst kl. 14:00. Foreldrar mæti að sjálfsögðu með börnum sínum (bæði eldri og yngri hópum).  Jólaball verður haldið í Grunnskólanum á Bakkafirði annan dag jóla og hefst kl. 15:00.

Jólaböllin eru opin öllum sem vilja taka þátt í gleði barnanna.  Og að sjálfsögðu munu jólasveinarnir mæta á staðinn

Skötuveislur!

Í hádeginu á Þorláksmessu verður boðið upp á dýrindis skötu (vestfirska) á Eyrinni.  Meðlæti verður allt samkvæmt efninu og ættu gæðin engan að svíkja. 

Á Bakkafirði verður skötuveislan í skólanum á milli kl. 17:00 og 19:00 á Þorláksmessu!

Flugeldasala!

Flugeldasala björgunarsveitarinnar Hafliða verður í Hafliðabúð:

Mánudaginn                 29. desember kl. 17:00 til 19:00

Þriðjudaginn                30. desember kl. 16:00 til 21:00

Miðvikudaginn 31. desember kl. 11:00 til 15:00

Á Bakkafirði verður flugeldasala með sama hætti og verið hefur!

Frá Brunavörnum Langanesbyggðar!

Í tilefni hátíðisdaganna sem senn fara í hönd er lag að yfirfara brunavarnir á heimilum okkar, því þar eru jú verðmæti samfélagsins falin, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.

Athugum eftirfarandi:

·         Reykskynjari í lagi (rafhlöður, 10 ára hámarksaldur og prófa 2:ar á ári)

·         Slökkvitæki sem næst útihurð á áberandi (Léttv. 9ltr., Duft 6 kg.)

·         Eldvarnarteppi í öll eldhús (skoða árlega)

·         Fara aldrei frá  logandi kerti

Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Messur um hátíðarnar!

Messur verða sem hér segir:

Í Þórshafnarkirkju

Á aðfangadag               kl.        22:00

Í Svalbarðskirkju

Á jóladag                     kl.        14:00

Skeggjastaðakirkja:

Á annan í jólum            kl.        11:00

Hátíðaropnun í Veri

Mánudagur 22. des.   13:00 22:00

Þorláksmessa  11:00 14:00

Aðfangadagur og jóladagur - Lokað

Annar í jólum  11:00 14:00

Laugardagur 27. des.  11:00 14:00 (Jólaboltamót Sport-Vers hefst kl. 14:00, skráning í íþróttamiðstöð eða í síma 468 1515, þátttökugjald)

Mánudagur 29. des.   13:00 20:00

Þriðjudagur 30. des.   11:00 20:00

Gamlársdagur 31. des.  11:00 14:00

Nýársdagur Lokað

Skákmeistari Þórshafnar 2007!

Keppnin skákmeistari Þórshafnar fer fram í Sport-Veri á Gamlársdag og hefst keppnin kl. 11:30.  Tekst Kristjáni Úlfarssyni að vinna bikarinn og titilinn þriðja árið í röð!

Gengið gegn vímuefnum!

Líkt og undanfarin ár verður farin blysför gegn vímuefnum á Gamlársdag.  Á Þórshöfn verður lagt af stað frá ristarhliðinu á Fjarðarvegi kl. 16:00 og gengið að félagsheimilinu Þórsveri.  Á Bakkafirði verður lagt af stað frá Arnarbúð kl. 16:00 og gengið út fyrir íþróttavöll (að bátnum). Mætum sem flest og tökum þátt í að vekja athygli á vágesti sem varðar okkur öll.  Kyndlar verða afhentir á staðnum.

Áramótabrennur!

Áramótabrennan á Gamlárskvöld verður á Þórshöfn út við Hjallamel og kveikt verður í brennunni kl. 20:30.   Á Bakkafirði verður kveikt í brennunni kl. 21:00.

Flugeldasýning!

Flugeldasýning björgunarsveitarinnar Hafliða verður á Gamlárskvöld og hefst kl. 21:30 við grindarhlið á Fjarðarvegi.  Besta útsýnið verður af hafnarsvæðinu.

Þórshöfn 22. desember 2008/Björn Ingimarsson sveitarstjóri