Fara í efni

Jólin alls staðar - Þórshafnarkirkju 9. des, kl 21:00

Fundur
Jólin alls staðar eru glænýjir jólatónleikar þar sem Regína Ósk fer fyrir fríðum hópi söngvara og hljóðfæraleikara. Með henni í för verða þau Guðrún Gunnars, Guðrún Árný og Jogvan ásamt hljómsveit og


Jólin alls staðar eru glænýjir jólatónleikar þar sem Regína Ósk fer fyrir fríðum hópi söngvara og hljóðfæraleikara. Með henni í för verða þau Guðrún Gunnars, Guðrún Árný og Jogvan ásamt hljómsveit og svo barnakórum frá hverjum stað.

Þau heimsækja 19 kirkjur hringinn í kringum landið með jólatónleika fyrir alla fjölskylduna.

Hópurinn hefur einnig lokið upptökum á samnefndri jólaplötu sem að kemur út í nóvember. Platan, sem og tónleikarnir, er uppfull af gömlu góðu jólalögunum í skemmtilegum útsetningum. Sannkallað afturhvarf til fortíðar og æskuminninga jólanna á afar skemmtilegan hátt.

Tónleikarnir á Þórshöfn verða í Þórshafnarkirkju sunnudaginn 9. desember og hefjast kl 21:00
Hægt er að panta miða á midi.is en einnig verða miðar seldir við innganginn.
Miðaverð aðeins kr. 3.990,- um land allt.

Upplifðu hlýja og notalega jólastemningu á aðventunni.
Einstaklega ljúfir jólatónleikar fyrir alla fjölskylduna.