Fara í efni

Josef er kominn til Íslands - búinn að koma í 29 ár

Fréttir
Það er orðinn fastur liður á vorin að sjá hann Josef okkar á ferðinni en hann hefur dvalið sumarlangt á svæðinu síðastliðin 10 ár og þetta er tuttugasta og níunda árið hans á Íslandi. Hann fékk þennan forláta bíl hjá Skúla á Álandi fyrir nokkrum árum þegar hann var hættur að treysta sér til að ferðast á gula hjólinu sínu og sofa í tjaldi. Núna sefur hann í bílum og þar er hver sentimetri vel nýttur, meira að segja bókahilla. Það er alltaf gaman að spjalla við hann, hann er svo þakklátur og segir alltaf að Ísland sé svo fallegt að hann geti ekki án þess verið. Við segjum vertu velkominn Josef :)

Það er orðinn fastur liður á vorin að sjá hann Josef okkar á ferðinni en hann hefur dvalið sumarlangt á svæðinu síðastliðin 10 ár og þetta er tuttugasta og níunda árið hans á Íslandi. Hann fékk þennan forláta bíl hjá Skúla á Álandi fyrir nokkrum árum þegar hann var hættur að treysta sér til að ferðast á gula hjólinu sínu og sofa í tjaldi. Núna sefur hann í bílum og þar er hver sentimetri vel nýttur, meira að segja bókahilla. Það er alltaf gaman að spjalla við hann, hann er svo þakklátur og segir alltaf að Ísland sé svo fallegt að hann geti ekki án þess verið. Við segjum vertu velkominn Josef :) /GBJ