KÁTIR DAGAR 2013
Föstudagurinn 19. júlí:
21:00 - Barsvar á Bárunni. Spyrill verður enginn annar en Ránar Jónsson.
00:00 - 03:00 - 3 Gráir Skuggar spila fram eftir nóttu á Bárunni. Miðaverð er 2000 kr.
Laugardagurinn 20. júlí:
10:00 - 13:00 - Ungmennafélag Langnesinga býður fólki upp á kanósiglingar.
13:00 - 17:00 - Útimarkaðir á Eyrarvegi fyrir framan Veitingahúsið Báruna. Smökkun á kúskel, þorski og ufsa, snyrtivörur,
sápur, hárvörur, herbalife, harðfiskur, notuð föt, handverk, sælgæti, forsala á ballið, hoppukastalar og kökuhlaðborð
á Bárunni.
14:00 - Ferðir með einkennisbílum bæjarins (lögreglu-, slökkviliðs-, björgunarsveitar- og sjúkrabíl) í boði fyrir unga jafnt sem
aldna.
00:00 - Stórdansleikur með Rokkabillýbandinu ásamt Hreimi Erni og Stefaníu Svavarsdóttur. Miðaverð er 2800 kr. í forsölu og 3000 kr.
við inngang. 18 ára aldurstakmark og er það fæðingardagurinn sem gildir.
Sunnudagurinn 21. júlí:
11:00 - Messa í Sauðaneskirkju.
14:00 - Gönguferð. Farið frá skemmunni í Gunnólfsvík. Gengið verður úr Gunnólfsvík í Urðarbala sem er fallegur
staður sunnan í fjallinu. Í Gunnólfsvík verða skoðaðar menjar og fræðst um útgerð á fyrri hluta 20. aldar. Stutt og létt
ganga, tilvalin fyrir alla fjölskylduna.
20:30 - Kósý kvöld í Þórshafnarkirkju með hljómsveitinni Kjass sem spilar þjóðlög, djass og frumsamið efni.
Aðgangseyrir er 1500 kr.