Kirkjur Íslands
Í tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið tuttugasta og fyrsta og tuttugasta og annað – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Þjóðminjasafn Íslands, Minjastofnun Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar í Safnahúsinu á Húsavík sunnudaginn 9. júní kl. 11.00.
Friðaðar kirkjur í Þingeyjarprófastsdæmi.
- Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og ritstjóri:
Kirkjur Íslands.
- Hjörleifur Stefánsson arkitekt:
Friðaðar kirkjur í Þingeyjarprófastsdæmi. - Sverrir Haraldsson kennari og sagnfræðingur:
Nokkrir gripir, fornir og nýir, í níu kirkjum í Þingeyjarprófastsdæmi. - Björn Ingólfsson rithöfundur og fræðimaður:
Nokkrir gripir, fornir og nýir, í fimm kirkjum í Þingeyjarprófastsdæmi.
Að erindum loknum mun séra Jón Ármann Gíslason prófastur opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk sem byggir á ritverkinu.
Fundarstjóri er Sigrún Kristjánsdóttir fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.
Málstofan verður endurtekin á Snartarstöðum kl. 15.00 þá um daginn.
Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 28 bindi og útgáfunni ljúki 2016.
Að útgáfunni standa Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.