Kjörfundir í sameiningakosningum 26. mars
20.03.2022
Fréttir
Kjörfundir í kosningum um sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps verða sem hér segir:
Á Þórshöfn: Í Félagsheimilinu Þórsveri frá kl. 10 - 18
Á Bakkafirði: Í skólahúsnæðinu (gengið inn hjá skrifstofu) frá kl. 10 - 18
Í Svalbarðshreppi: Í Svalbarðsskóla frá kl. 10 - 18
Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hjá öllum sýslumannsembættum á landinu.
Talning hefst þegar kjörfundi lýkur.
Yfirkjörstjórn.