Fara í efni

Kjörskrá Langanesbyggðar

Fréttir

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fer fram laugardaginn 30. nóvember næstkomandi, verður almenningi til sýnis á skrifstofu Langanesbyggðar fram að kjördag. Kjörskráin miðast við heimilisfang hjá Þjóðskrá 29. október 2024. 
Allar nánari upplýsingar má einnig finna á vefsíðunni kosning.is og á skra.is er hægt að fletta upp hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá.