Krepputerta
01.01.2009
Íþróttir
Árið 2008 hefur verið fjármálafyrirtækjum erfitt og höfum við hjá Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis þurft að takast á við afleiðingarnar eins og aðrir landsmenn. Halldóri Halldórssyni varð
Árið 2008 hefur verið fjármálafyrirtækjum erfitt og höfum við hjá Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis þurft að takast á
við afleiðingarnar eins og aðrir landsmenn.
Halldóri Halldórssyni varð hugsað til okkar þegar hann fékk kökuspaða í jólagjöf frá Sparisjóðnum, bakaði stóra krepputertu
og kom færandi hendi til að gleðja starfsfólkið á síðasta degi ársins.
Af því tilefni orti ein okkar:
Birtist hér með spaðann sinn
og tertuna svo fína.
Núna áttu Dóri minn
alla ástúð mína.
Starfsfólk Sparisjóðsins sendir ykkur öllum bestu jóla- og nýjárskveðjur.