Kvenfélagið Hvöt gefur veglegar gjafir
Kvenfélagskonur á Þórshöfn hafa alltaf verið traustur bakhjarl samfélagsins og afhentu rausnarlegar gjafir á laugardaginn. Björgunarsveitin Hafliði fékk 500 þúsund fyrir kaupum á nýjum Tetra stöðvum og fylgibúnaði, sem mun nýtast vel í því öfluga starfi sem unnið er þar á bæ. Þá var sjúkrabifreiðin einnig styrkt um 500 þúsund til kaupa á búnaði í bílinn sem kemur sér afar vel að sögn sjúkraflutningsmanna. Kvenfélagið á hrós skilið fyrir þessar gjafir sem nýtast öllu samfélaginu.
Hildur Kristín, Heiðrún og Hrafngerður Ösp afhentu styrkin fyrir hönd Hvatar og á móti styrknum tóku Vikar Már, Guðmundur Ari, Sólrún Arney og Þórir fyrir hönd stórn Hafliða.
Sjúkraflutningamennirnir Þorsteinn Egilsson og Júlíus Sigurbjartsson taka við gjafabréfi frá Kvenfélaginu Hvöt en það afhentu stjórnarkonurnar Hildur Aðalbjörnsdóttir, Heiðrún Óladóttir og Hrafngerður Ösp Elíasdóttir.