Fara í efni

Kjarasamningar - kynningarfundur

Fréttir
Fundarboð frá Verkalýðsfélagi Þórshafnar

Fundarboð frá Verkalýðsfélagi Þórshafnar.

Föstudaginn 10.janúar 2014.kl.17.00 verða nýgerðir kjarasamningar milli Starfgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins,kynntir af Aðalsteini Baldurssyni formanni Framsýnar,fundurinn verður haldinn í matsal Íþróttamiðstöðvarinnar.
Félagsmenn Verkalýðsfélags Þórshafnar eru hvattir til að mæta á fundinn,hægt verður að kjósa um samninginn á fundinum, og einnig á skrifstofu V.Þ. á þriðjudag 14.jan.  miðvikudag 15.og fimmtud.16.jan milli kl.9-12.
Kosningu lýkur kl.12 að hádegi fimmtudaginn 16.janúar.
Rétt er að taka fram að kjarasamningurinn gildir ekki fyrir starfsmenn hjá ríki og sveitarfélögum.                 

                      Þórshöfn 7.janúar 2014 
                Stjórn Verkalýðsfélags Þórshafnar