Langanesbyggð kveður veturinn og fagnar sumrinu með nýrri heimasíðu
24.04.2013
Fréttir
Í dag opnaði sveitarfélagið Langanesbyggð nýja heimasíðu sína.
Í dag opnaði sveitarfélagið Langanesbyggð nýja heimasíðu sína. Heimasíðan er ekki fullgerð en haldið verður áfram að bæta við efni á þær síður sem ennþá eru í vinnslu á næstu vikum og mánuðum.
Þessi heimasíða opnar ýmsa möguleika á því að setja inn efni sem gamla heimasíðan hafði ekki.
Íbúar Langanesbyggðar eru hvattir til að senda inn myndir, fréttir, tilkynningar og viðburði svo að hægt sé að setja það á nýju heimasíðuna á netfangið sirry@langanesbyggð.is
Gleðilegt sumar