Fara í efni

Langanesbyggð heilsueflandi samfélag

Fréttir
Í gær, þriðjudaginn 12. júní, var undirritaður samningur milli Langanesbyggðar og Embætti Landlæknis um aðild sveitarfélagsins að verkefninu Heilsueflandi samfélag.

Í gær, þriðjudaginn 12. júní, var undirritaður samningur milli Langanesbyggðar og Embætti Landlæknis um aðild sveitarfélagsins að verkefninu Heilsueflandi samfélag.

Þorsteinn Ægir Egilsson oddviti bauð gesti velkomna og greindi frá komu sveitarfélagsins að vekefninu, fyrirætlunum þess o.fl. Sagði hann að stefnt væri að kynningarfundi í haust með íbúum, félagasamtökum og öðrum hagsmunaaðilum, en góð samstaða er um verkefnið innan sveitartjórnar. Alma Möller landlæknir ávarpaði samkomuna einnig og fór yfir mikilvægi verkefnisins.

Fjölmennt var í Þórsveri við undirritunina og voru góðar umræður og fjölmörgum fyrirspurnum beint til landlæknis frá fundargestum.

Myndir teknar af tilefni undirritunarinnar og halda þau Alma Möller landlæknir og Elías Pétursson sveitarstjóri á fána sem sveitarfélaginu var afhentur af tilefninu.