Fara í efni

Langanesbyggð óskar eftir starfsmanni í félagslega heimaþjónustu í Langanesbyggð.

Fréttir

Markmið starfsins er að aðstoða og valdefla einstaklinga með sérstakar stuðningsþarfir til virkni og sjálfstæðrar búsetu.

Nánar um starfið:
Að veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklinga eru hafðar að leiðarljósi, auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir þjónustunotendur.
Þjónustunotendur eru einstaklingar með sérstakar stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda.
Starfsmaður vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun.
Starfshlutfall er u.þ.b. 67%.
Vinnutími er sveigjanlegur og samkvæmt samningi við yfirmann.

Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að afla sér aukinnar þekkingar með námi eða þátttöku á námskeiðum og starfsmenntun.
Sjúkraliða- eða félagsliðamenntun er kostur.
Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði.

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2024

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Magnúsdóttir forstjóri Nausts í síma 468 1322 eða í gegn um netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is  og Fanney Hreinsdóttir hjá félagsþjónustu Norðurþings í síma 464-6100 eða í gegnum netfangið fanney@nordurthing.is