Fara í efni

Langaneshlaup UMFL fimmtudaginn 25. maí

Fréttir
Fimmtudaginn 25.maí n.k.verður hið árlega Langaneshlaup UMFL. Þar geta allir verið með því það er í góðu lagi að labba, skokka, hlaupa eða hjóla. Mældar verða vegalengdirnar 1,5km, 3km, 5km, 7km, 10km, 15km og hálft maraþon eða 21,2km. Ræst verður frá íþróttahúsinu kl.10:00 í 15km og 21.2km og kl. 10:30 fyrir allar hinar vegalengdirnar. Ekkert þátttökugjald og allir fá verðlaunapening í viðurkenningarskyni og smá hressingu í lokin. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna að eiga frábæran dag saman sem byrjar á úti hreyfingu og jafnvel að skella sér í sund á eftir. ATH:foreldrar eru hvattir til að koma með yngri börnum til að passa upp á að þau fari ekki of langt og komist aftur til baka. Vonumst til að sjá sem flesta og ALLIR eru velkomnir. Stjórn UMFL

Fimmtudaginn 25.maí n.k.verður hið árlega Langaneshlaup UMFL. Þar geta allir verið með því það er í góðu lagi að labba, skokka, hlaupa eða hjóla. Mældar verða vegalengdirnar 1,5km, 3km, 5km, 7km, 10km, 15km og hálft maraþon eða 21,2km. Ræst verður frá íþróttahúsinu kl.10:00 í 15km og 21.2km og kl. 10:30 fyrir allar hinar vegalengdirnar. Ekkert þátttökugjald og allir fá verðlaunapening í viðurkenningarskyni og smá hressingu í lokin. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna að eiga frábæran dag saman sem byrjar á úti hreyfingu og jafnvel að skella sér í sund á eftir.
ATH:foreldrar eru hvattir til að koma með yngri börnum til að passa upp á að þau fari ekki of langt og komist aftur til baka.
Vonumst til að sjá sem flesta og ALLIR eru velkomnir.
Stjórn UMFL