Fara í efni

Langanesið er ekki ljótur tangi ...

Fréttir
Oddviti Langanesbyggðar, Reynir Atli Jónsson, færði Grunnskólanum á Þórshöfn málverkið Finnaðfjörð að gjöf til skólans tilefni opins húss

Reynir Atli Jónsson, færði Grunnskólanum á Þórshöfn málverkið Við Finnafjörð að gjöf til tilefni opins húss í dag, föstudag. Málverkið er eftir Hildi Ásu Henrýsdóttur og sýnir Gunnólfsvíkurfjall í bakgrunni Finnafjarðar. Maðurinn á myndinn á að vera Ránar Jónsson. Málverkið var fyrst sýnt á sýningu sem bar heitið Langanesið er ekki ljótur tangi sem var hluti af bæjarhátiðinni Kátum dögum árið 2014.

Hildur er uppalin á Þórshöfn og stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, hún lauk námi í Nútímafræði við Háskólann á Akureyri árið 2012 og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands í myndlist árið 2016.